Atriðisorð:
Bláfjöll




  Örnefni
Dálkur: É Röð: 23
© Haukur Snorrason/photos.is 
Grá – blá – grænt

Í Heiðmörk er gott að leggja bíl í Sveppadal sem börnin
kalla,
og ganga svo upp dalinn og áfram sem leið liggur, inn á
þann dal
sem sker sig í áttina til Bláfjalla. Og sé þá suðaustanátt
er
gott að staldra við og hlusta á vindinn sem leggur ofan í
dalinn
þar sem skógurinn er hæstur. –
Barrið sníður vindinn
blágráan vindinn
í syngjandi strengi
og mosinn mýkir hvern tón.
Grá – blá – grænt
syngur vindurinn syngur hugurinn syngur
barrið.

Baldur Óskarsson

  prenta