Ljóð sem byrja á: F
Dálkur: G Röð: 34
© Haukur Snorrason/photos.is 
Fótsterk

Hvað hún hefur verið fótsterk
formóðir þeirra úr víkinni.
Hamhleypa
með ómegð í pilsum,
stökkvandi yfir skörð og heiðar
vor og haust
til að afla fanga
og þraukaði svo langan vetur í myrkri og snjó.
Hvað hún hefur verið fótsterk.
Fann það þegar ég stóð lafmóð í Uxaskarði í sumar
og horfði yfir víkina
umkringda háum fjöllum,
fann hvað hún hlaut að hafa verið glöð
daginn sem hún kom heim úr kaupstað
og sá úr skarðinu hvíta fláka í túni
lúðuflök úr sjó
og flaug heim í bæ
án þess að finna fyrir strengjum.
Vissi að hvergi annars staðar átti hún heima.

Allt var þetta fyrir tíma þolfimi og teygjuæfinga

Sigrún Björnsdóttir
  prenta