•  Andri Snær Magnason
   •  Anna S. Björnsdóttir
   •  Anton Helgi Jónsson
   •  Ágústína Jónsdóttir
   •  Ásta Sigurðardóttir
   •  Baldur Óskarsson
   •  Benedikt Gröndal
   •  Berglind Gunnarsdóttir
   •  Birgir Sigurðsson
   •  Birgir Svan Símonarson
   •  Birgitta Jónsdóttir
   •  Bjarni Thorarensen
   •  Bólu-Hjálmar
   •  Bragi Ólafsson
   •  Dagur Sigurðarson
   •  Davíð A. Stefánsson
   •  Davíð Stefánsson
   •  Didda
   •  Eggert Ólafsson
   •  Einar Benediktsson
   •  Einar Bragi
   •  Einar Már Guðmundsson
   •  Elísabet Jökulsdóttir
   •  Elísabet Þorgeirsdóttir
   •  Erla
   •  Gerður Kristný
   •  Grímur Thomsen
   •  Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum
   •  Guðmundur Böðvarsson
   •  Guðrún Auðunsdóttir
   •  Gyrðir Elíasson
   •  Halla Eyjólfsdóttir frá Laugabóli
   •  Halla Jónsdóttir
   •  Halldór Laxness
   •  Halldóra B. Björnsson
   •  Hallgrímur Helgason
   •  Hannes Hafstein
   •  Hannes Pétursson
   •  Hannes Sigfússon
   •  Haukur Ingvarsson
   •  Hjördís Einarsdóttir
   •  Hugrún
   •  Hulda
   •  Ingibjörg Haraldsdóttir
   •  Ingunn Snædal
   •  Ísak Harðarson
   •  Jakobína Sigurðardóttir
   •  Jóhann Hjálmarsson
   •  Jóhann Jónsson
   •  Jóhann Sigurjónsson
   •  Jóhanna Sveinsdóttir
   •  Jóhannes úr Kötlum
   •  Jón Helgason
   •  Jón Óskar
   •  Jón Thoroddsen
   •  Jón úr Vör
   •  Jón Þorláksson
   •  Jónas Hallgrímsson
   •  Jónas Þorbjarnarson
   •  Júlíana Jónsdóttir
   •  Kristín Ómarsdóttir
   •  Kristján frá Djúpalæk
   •  Kristján Jónsson
   •  Látra-Björg
   •  Linda Vilhjálmsdóttir
   •  Margrét Jónsdóttir
   •  Margrét Lóa Jónsdóttir
   •  Matthías Jochumsson
   •  Matthías Johannessen
   •  Megas
   •  Nína Björk Árnadóttir
   •  Ólafur Jóhann Sigurðsson
   •  Ólína Andrésdóttir
   •  Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum
   •  Óskar Árni Óskarsson
   •  Páll Ólafsson
   •  Pétur Gunnarsson
   •  Ragna Sigurðardóttir
   •  Rósa Guðmundsdóttir
   •  Sigfús Bjartmarsson
   •  Sigfús Daðason
   •  Sigmundur Ernir Rúnarsson
   •  Sigríður Einars frá Munaðarnesi
   •  Sigrún Björnsdóttir
   •  Sigurbjörg Þrastardóttir
   •  Sigurður A. Magnússon
   •  Sigurður Breiðfjörð
   •  Sigurður Jónsson
   •  Sigurður Pálsson
   •  Sjón
   •  Snorri Hjartarson
   •  Sonja B. Jónsdóttir
   •  Stefán Hörður Grímsson
   •  Steinar Bragi
   •  Steingerður Guðmundsdóttir
   •  Steingrímur Thorsteinsson
   •  Steinn Steinarr
   •  Steinunn Ásmundsdóttir
   •  Steinunn Eyjólfsdóttir
   •  Steinunn Sigurðardóttir
   •  Stephan G. Stephansson
   •  Sveinbjörn Egilsson
   •  Sveinbjörn I. Baldvinsson
   •  Sverrir Björnsson
   •  Theodóra Thoroddsen
   •  Védís Leifsdóttir
   •  Vigdís Grímsdóttir
   •  Vilborg Dagbjartsdóttir
   •  Þorgeir Sveinbjarnarson
   •  Þorsteinn Erlingsson
   •  Þorsteinn frá Hamri
   •  Þorsteinn Gíslason
   •  Þorsteinn Valdimarsson
   •  Þóra Jónsdóttir
   •  Þórarinn Eldjárn
   •  Þórbergur Þórðarson
   •  Þórður Helgason
   •  Þórunn Valdimarsdóttir
   •  Þuríður Guðmundsdóttir

 Einar Benediktsson
Dálkur: Á Röð: 41
© Haukur Snorrason/photos.is 

 
Sumarmorgunn í Ásbyrgi

Alfaðir rennir frá austurbrún
auga um hauður og græði.
Glitrar í hlíðinni geislarún,
glófaxið steypist um haga og tún.
Signa sig grundir við fjall og flæði, –
faðmast í skrúðgrænu klæði.

Þýtur í smávængjum grein af grein,
grösin við morguninn tala;
morar af lífi hver moldarrein,
maðkurinn iðar við grátandi stein.
Héraðið roðnar og rís af dvala.
Rýkur við hóla og bala.

Heiðanes skaga á hendur tvær,
háfjöll í suðrinu rísa.
Norðrið er opið; þar Ægir hlær,
auðugur, djúpur, og sandana slær.
Gráblikur yzt fyrir landi lýsa,
líkast sem bjarmi á ísa.

Norðan að Sléttunnar stálblá strönd
starir úr lognboða róti.
Fóstra, hún réttir þar hægri hönd,
harðskeytt og fengsæl, í útstrauma rönd.
Lætur við eyra sem lífæð þjóti.
Leikur þar „Jökla“ í grjóti.

Fangamark árinnar, band við band
blikar, í sveitina grafið.
Starengi blakta við blakkan sand,
bæina hillir í óskanna land.
Flaumar og sund – allt er sumri vafið,
syngur og leiðist í hafið.

Ásbyrgi, prýðin vors prúða lands,
perlan við straumanna festi,
frjótt eins og óðal hins fyrsta manns,
fléttar hér blómin í hamranna krans.
Standbjörgin kveðjunni kasta á gesti –
kringd, eins og járn undan hesti.

Sögn er, að eitt sinn um úthöf reið
Óðinn og stefndi inn fjörðinn.
Reiðskjótinn, Sleipnir, á röðulleið,
renndi til stökks yfir hólmann, á skeið,
spyrnti í hóf, svo að sprakk við jörðin, –
sporaði byrgið í svörðinn.

Tindrar í lundinum ljóragler.
Lúta sjást smalar til berja. –
Hóftungumarkið í miðju er,
mannsauga rammara vígi ei sér;
vildi hér nokkur í heimi herja,
hefðum vér nokkuð að verja?

– – Náttúran grípur mig, himinheið.
Hér er sem lúður mig veki.
Horfi eg á drenginn við högginn meið,
hitti mig sjálfan á barnanna leið,
öll verður vizkan að æskubreki,
einfeldnin guðdómleg speki.

Það, sem ég ann, ber nú opinn knör
úti, með vonum og kvíða.
– Leiftrar við svipur af sigurför.
Syrgjandi, fagnandi rek eg mín kjör.
Morgun og sumar og mann skal líða.
Móðir vor ein á að bíða.

Volduga fegurð, ó, feðrajörð,
fölleit, með smábarn á armi,
elski þig sveinar hjá hverri hjörð,
helgist þér menn við hvern einasta fjörð.
Frjáls skaltu vefja vor bein að barmi,
brosa með sól yfir hvarmi.

  prenta