|
|
|
|
|
|
|
|
|
© Haukur Snorrason/photos.is
|
|
|
Eftir endalaus skammdegiskvöldin |
Saltur sjór sem skvettist
endalaus dægur haustsins
þegar dimman lengist – dagurinn styttist.
Hvítur mávur sem flögrar
sest á bryggjusporð, mastur skips
meðan fólkið þyngist á brún – dagurinn styttist.
Seinna – löngu seinna
eftir endalaus skammdegiskvöldin
takast sólin og himinninn í hendur
og lita veröldina bláa.
Lita veröldina bláa
og dagurinn lengist á ný. |
|