•  Andri Snær Magnason
   •  Anna S. Björnsdóttir
   •  Anton Helgi Jónsson
   •  Ágústína Jónsdóttir
   •  Ásta Sigurðardóttir
   •  Baldur Óskarsson
   •  Benedikt Gröndal
   •  Berglind Gunnarsdóttir
   •  Birgir Sigurðsson
   •  Birgir Svan Símonarson
   •  Birgitta Jónsdóttir
   •  Bjarni Thorarensen
   •  Bólu-Hjálmar
   •  Bragi Ólafsson
   •  Dagur Sigurðarson
   •  Davíð A. Stefánsson
   •  Davíð Stefánsson
   •  Didda
   •  Eggert Ólafsson
   •  Einar Benediktsson
   •  Einar Bragi
   •  Einar Már Guðmundsson
   •  Elísabet Jökulsdóttir
   •  Elísabet Þorgeirsdóttir
   •  Erla
   •  Gerður Kristný
   •  Grímur Thomsen
   •  Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum
   •  Guðmundur Böðvarsson
   •  Guðrún Auðunsdóttir
   •  Gyrðir Elíasson
   •  Halla Eyjólfsdóttir frá Laugabóli
   •  Halla Jónsdóttir
   •  Halldór Laxness
   •  Halldóra B. Björnsson
   •  Hallgrímur Helgason
   •  Hannes Hafstein
   •  Hannes Pétursson
   •  Hannes Sigfússon
   •  Haukur Ingvarsson
   •  Hjördís Einarsdóttir
   •  Hugrún
   •  Hulda
   •  Ingibjörg Haraldsdóttir
   •  Ingunn Snædal
   •  Ísak Harðarson
   •  Jakobína Sigurðardóttir
   •  Jóhann Hjálmarsson
   •  Jóhann Jónsson
   •  Jóhann Sigurjónsson
   •  Jóhanna Sveinsdóttir
   •  Jóhannes úr Kötlum
   •  Jón Helgason
   •  Jón Óskar
   •  Jón Thoroddsen
   •  Jón úr Vör
   •  Jón Þorláksson
   •  Jónas Hallgrímsson
   •  Jónas Þorbjarnarson
   •  Júlíana Jónsdóttir
   •  Kristín Ómarsdóttir
   •  Kristján frá Djúpalæk
   •  Kristján Jónsson
   •  Látra-Björg
   •  Linda Vilhjálmsdóttir
   •  Margrét Jónsdóttir
   •  Margrét Lóa Jónsdóttir
   •  Matthías Jochumsson
   •  Matthías Johannessen
   •  Megas
   •  Nína Björk Árnadóttir
   •  Ólafur Jóhann Sigurðsson
   •  Ólína Andrésdóttir
   •  Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum
   •  Óskar Árni Óskarsson
   •  Páll Ólafsson
   •  Pétur Gunnarsson
   •  Ragna Sigurðardóttir
   •  Rósa Guðmundsdóttir
   •  Sigfús Bjartmarsson
   •  Sigfús Daðason
   •  Sigmundur Ernir Rúnarsson
   •  Sigríður Einars frá Munaðarnesi
   •  Sigrún Björnsdóttir
   •  Sigurbjörg Þrastardóttir
   •  Sigurður A. Magnússon
   •  Sigurður Breiðfjörð
   •  Sigurður Jónsson
   •  Sigurður Pálsson
   •  Sjón
   •  Snorri Hjartarson
   •  Sonja B. Jónsdóttir
   •  Stefán Hörður Grímsson
   •  Steinar Bragi
   •  Steingerður Guðmundsdóttir
   •  Steingrímur Thorsteinsson
   •  Steinn Steinarr
   •  Steinunn Ásmundsdóttir
   •  Steinunn Eyjólfsdóttir
   •  Steinunn Sigurðardóttir
   •  Stephan G. Stephansson
   •  Sveinbjörn Egilsson
   •  Sveinbjörn I. Baldvinsson
   •  Sverrir Björnsson
   •  Theodóra Thoroddsen
   •  Védís Leifsdóttir
   •  Vigdís Grímsdóttir
   •  Vilborg Dagbjartsdóttir
   •  Þorgeir Sveinbjarnarson
   •  Þorsteinn Erlingsson
   •  Þorsteinn frá Hamri
   •  Þorsteinn Gíslason
   •  Þorsteinn Valdimarsson
   •  Þóra Jónsdóttir
   •  Þórarinn Eldjárn
   •  Þórbergur Þórðarson
   •  Þórður Helgason
   •  Þórunn Valdimarsdóttir
   •  Þuríður Guðmundsdóttir

 Snorri Hjartarson
Dálkur: D Röð: 48
© Haukur Snorrason/photos.is 

 
Það kallar þrá

Það kallar þrá í þögn og erli dags,
í þysi grárra nótta
úr ljósri firð, úr grasi gróins stígs,
þú gekkst þar barn, fannst lífið verða til;
yfir þér gnæfðu hnitbjörg helgra vætta
með höggna dranga, steindar hurðir
og veittu öllu vörn og skjól,
úr véum þeirra heyrðir
þú ómsælt heiðið huliðsmál
sem hjartað nam í trú og gróðurró.

Þú manst og vakir nístur angist, nú
er nóttin rauð og fjarskinn kallar á þig
og skipar: Rístu af velktum beði, bú þig
á braut úr sofnu fangi!
Þú stendur einn við opnar dyr
alls sem þú vannst þér, skoðar hug þinn betur
og hverfur út og gengur lengi, lengi,
því leiðin burt og heim með naktar rætur
er grýtt og löng og færðin þung um fokin spor
unz fjallið lyftir brúnum döggvaðs steins,
fjallið þitt eina, strjálað stjörnueldum
á ströndu draumlands þíns.

Flughamrabratt og rökkurdimmurautt
rís það úr breiðum öldum
laufgrænna hæða, löðri hvítra blóma
og lágum móagárum. Þú ferð stillt og hljótt
þinn gróna veg um djúpsins myldnu dul
að dyrum læstra heima
og sökkvir bæn í fjallsins hljómahyl:
Heilögu vættir, takið mig í sátt!

Þú hlustar, heyrir þung
högg gjalla, sleggjur rísa, falla ótt
og fast og hátt, og belgi þjóta, blása
í brimsog rauðra loga, þjöl og töng
gæla við stál, en heitar eggjar hvæsa
í herzluþró.
Og bergmálsöldur blóðs þíns falla, rísa,
og brjóst þitt drekkur aflsins gný.

Hvar er þitt friðarathvarf, gróðurhlé
þíns innsta draums og hjartans vörn?
Þú horfir upp um gnúpsins gneypu múra
í geig og spurn;
þar sérðu neista sindra um ljóra,
sólhvítra stjarna él
þyrlast um bergið, sogast út í svartan geim,
Svaninn og Drekann, Vagnsins miklu hjól,
sem rista á hvolfið rúnir fáðar eldi:
rök þín og dóm.

Rök þín og alls sem er. Frá tregans gjaldi
flýr enginn, sízt í gömul spor;
í skjóli fjallsins, þar sem von þín var,
er veröld þrotlauss stríðs í fyrirsát.
Það streymir að þér máttur, ógn og mildi,
minningin hverfur inn í nýar þrár
og inn í bjargið þar sem hjarta heimsins slær
við hörgsins roðna grjót
í sigurþyrstri sóun, sköpun: Gef
þig sjálfan, gef þig allan dýrð og valdi
lífsins, þér sjálfum, þú ert þetta líf,
það sem þú vinnur til og færð að gjöf!

Og þráin forna, ung og eldi skírð,
sem áður dró þig bleikan flóttamann
til upphafs þíns í dreymdri klettakyrrð,
kallar þig heim á ný til starfs og skyldu
og ögrar þér: Dvel eilífð fjallsins háður
við aflinn smiður, málmur, loginn rauður,
og slá í órofsönn
ef ekki sverð, þá gullin stef á skjöldu!

  prenta