|
|
|
|
|
|
|
|
|
© Haukur Snorrason/photos.is
|
|
|
Áin streymir
um eyðibyggð. –
Og vært þig dreymir,
þó djúpa hryggð
þú geymir. –
Um eyðibyggð
áin streymir.
Þú litast hljóður
um lágan mó –
þín bernsku rjóður,
hinn blásna skóg
og gróður. –
Um lágan mó
þú litast hljóður.
Að föllnum garði
ei framar spyr. –
Að dyrum barði
þar dauðinn fyr
en varði. –
Ei framar spyr
að föllnum garði.
Úr stað og skorðum
allt stundlegt ber. –
En yndis orðum
þó andar hér
sem forðum. –
Allt stundlegt ber
úr stað og skorðum.
Áin niðar.
Ó, auðnar kyrrð! –
Degi miðar
í misturfirrð
til viðar. –
Ó, auðnar kyrrð!
Áin niðar. |
|