Landslag
Dálkur: B Röð: 44
© Haukur Snorrason/photos.is 
Vegferð

... þá kleifst þú klettótta slóða
með slíðrað sverð í farteskinu

leiðin lá á tinda
faðmaðir himin
í friði

jöklar og eldfjöll
risu til þín
á hæsta tindinn

tré í skógi hafa lofað
þúsund þig
hrópað þig velkomna
fræ þeirra falla til jarðar
og vaxa með minningu þína

nú stend ég einn í skógi miðjum
í iljarnar kitlar af iðandi fræjum
og hrópa svo undir taka tré:

Af myrkri þínu stafar
birtu þess sem lifað hefur

dáið
og valið að lifa ...

Davíð A. Stefánsson

  prenta