© Haukur Snorrason/photos.is
Þjóta vorvindar
Þjóta vorvindar
vötn kætast
flýgur fugl
andar ástúð
um auðn og dal
leikur lífs
Blása laufvindar
yfir lyngheiði
hægt og hljótt
bera ilm blóma
bera angan heys
bera þrá
Fara kulvindar
um keldusef
boða haust
rugga blaðvana
birkirenglum
stynja strá
Kemba haustvindar
heiðarbrúnir
fylgja él
fellur snælín
að fræi og rót
lifir líf
Halldóra B. Björnsson