© Haukur Snorrason/photos.is
Haust
Í dag er hlíðin hélugrá og rauð
því haustið kom í nótt, ég sá
það koma vestan vatn í gegnum svefninn;
vatnið er hemað þar sem slóð þess lá.
Snorri Hjartarson