© Haukur Snorrason/photos.is
Drangey
Geigvæn hver andrá:
gripið, haldið og sleppt.
Örmjó syllan
hál
og hyldýpið undir.
Er krumlan sem ítrekað
sker á festar með skálm
hin sama og þrífur
um úlnlið manns eða ökkla
á neyðarnöf?
Þorsteinn frá Hamri