© Haukur Snorrason/photos.is 

Álfareiðin
(Heinrich Heine)

Stóð eg úti’ í tunglsljósi, stóð eg úti’ við skóg,
stórir komu skarar, af álfum var þar nóg;
blésu þeir á sönglúðra og bar þá að mér fljótt
og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt.

Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund,
hornin jóa gullroðnu blika við lund;
eins og þegar álftir af ísa grárri spöng
fljúga austur heiði með fjaðraþyt og söng.

Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið,
hló að mér og hleypti hestinum á skeið.
Var það út af ástinni ungu sem eg ber?
eða var það feigðin sem kallar að mér?

Jónas Hallgrímsson