|
|
|
|
|
|
|
© Haukur Snorrason/photos.is
|
|
|
Öxar við ána
Árdags í ljóma
Upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána,
Skært lúðrar hljóma,
Skundum á Þingvöll og treystum vor heit.
Fjallhaukar skaka
Flugvængi djarfa,
Frána mót ljósinu hvessa þeir sjón;
Þörf er að vaka,
Þörf er að starfa
Þjóð, sem að byggir hið ískalda Frón.
Guð gaf oss vígi;
Grand ógnar lýði, –
Geigvænt er djúpið og bergveggur hár,
Ódrengskap, lygi,
Landsvika níði,
Lævísi, tvídrægni hrindum í gjár.
Varinn sé stáli
Viljinn, og þreytum
Veginn, sem liggur að takmarki beinn,
Hælumst í máli
Minnst eða skreytum,
Mál vort er skýlaust og rétturinn hreinn. |
Steingrímur Thorsteinsson |
|