Hekla framanverð er meyprinsessa
spengileg, grimm, á köflum banvæn.
Þessa hlið þekkir það
dauðlegt fólk sem skröltir á hringvegi.
Önnur Hekla blasir við görpum
sem hætta sér inn á hálendistómið:
Óþekkjanleg stútungskerling
breið og brussuleg aftanfyrir.
Verðlaun ofurhugans, segja hringvegsmenn. |