Það líður frá hádegi.
Hafgolan leitar inn:
um húsasund og götur
fer gustur blýlitaður.
Mjög stakar
verða strjálar persónur
utandyra
fyrir opnu Norðrinu.
Fjörðurinn í boga
blágrænn við sand og malir
í stórum boga
sem er stjörnunum samboðinn.
Og hjartað fylgist með deginum:
daufgerðum, löngum mínútum
í halarófu
inn undir himin kvöldlygnunnar. |