Ljóð sem byrja á: Þ
Dálkur: C Röð: 30
© Haukur Snorrason/photos.is 
Þar sem háfjöllin heilög rísa

Þar sem háfjöllin heilög rísa
mót heiðskírri norðurátt,
á landi íslenskra ísa,
þar er þér, sál mín, svo dátt;

þar sem öræfafuglinn flögrar
í frosti um skarð og tind
og jökulauðnin þér ögrar
sem óklöppuð dýrlíngsmynd.

þar sem Urðhæð og Einbúi vaka
og eldborgin hvíta rís
og fornir fjallgalar kvaka,
þar finn ég þig loks, mín dís!

Á vörum þér sælan sefur;
af sjónum þér andvakan skín,
og mjúkt um þinn meydóm vefur
mjöllin sitt frostalín.

Halldór Laxness
  prenta