Atriðisorð: Reynisdrangar
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
© Haukur Snorrason/photos.is
|
|
|
Mig dreymir yfirleitt ekki
en í nótt dreymdi mig ófleyga lunda í tuga
ef ekki hundraðatali.
Þeir skóku stutta vængina út í loftið án afláts
en komust hvergi.
Þetta var í Reynisfjörunni
milli dranganna og Dyrhólaeyjar.
Þar hefur mér alltaf liðið vel.
Í draumnum steðjaði ógn
að fuglunum frekar en mér
og getuleysi þeirra grúfði sig yfir mig
eins og yfirvomandi dauði.
Þegar ég vaknaði fannst mér ótrúlegt að ekki væri
rigningarúði
því þannig hafði verið í draumnum;
úði í fjörunni en sólstafir víða á hafi. |
|