Atriðisorð:
Kolbeinsey




  Örnefni
Dálkur: B Röð: 14
© Haukur Snorrason/photos.is 
Kolbeinsey

Bræðurnir sigldu báðir
burtu frá ungri mey,
langt burt frá systur sinni,
að sækja í Kolbeinsey.

Þar er svo dúnað í dúni
að djankinn liggur þar
bara bráðhendis hissa
og breiðir út lappirnar.

Ömurlegt allt mér þykir
útnorður langt í sjá;
beinin hvítna þar beggja
bræðranna klettinum á.

Jónas Hallgrímsson

  prenta