|
|
|
|
|
|
|
|
|
© Haukur Snorrason/photos.is
|
|
|
Hér mætumst við þá aftur
litla stolta fjallkonan mín
á nýjum krossgötum öræfavillunnar.
Leiðumst nú burt úr Ódáðahrauni
og hverfum í mistrið á Sprengisandi.
Dilli okkur þar inn í svefninn langa
hin kulsæla flauta gleymskunnar
með vögguvísunni eilífu
um barnið sem aldrei varð til. |
|