Atriðisorð:
Hallormsstaðaskógur




  Örnefni
   •  Hallormsstaðaskógur - Þorsteinn Erlingsson
   •  Hallormsstaðaskógur - Halldór Laxness
   •  Hallormsstaður - Þórunn Valdimarsdóttir
   •  Haukadalsskógur - Gyrðir Elíasson
   •  Hegranes - Jónas Hallgrímsson
   •  Heiðmörk - Gyrðir Elíasson
   •  Heiðmörk - Baldur Óskarsson
   •  Hekla - Eggert Ólafsson
   •  Hekla - Jónas Hallgrímsson
   •  Hekla - Andri Snær Magnason
   •  Hekla - Anton Helgi Jónsson
   •  Hekla - Jónas Hallgrímsson
   •  Hekla - Kristján Jónsson
   •  Hekla - Steinunn Sigurðardóttir
   •  Hekla - Steinunn Sigurðardóttir
   •  Helgafell - Jón Helgason
   •  Hellisheiði - Steinunn Sigurðardóttir
   •  Hellissandur - Jóhann Hjálmarsson
   •  Hellnar - Birgir Svan Símonarson
   •  Herdísarvík - Haukur Ingvarsson
   •  Herdísarvík - Hannes Pétursson
   •  Herðubreið - Kristján Jónsson
   •  Herðubreið - Jón Helgason
   •  Herðubreið - Sigurbjörg Þrastardóttir
   •  Herðubreið - Grímur Thomsen
   •  Herðubreið - Gyrðir Elíasson
   •  Héraðsvötn - Þorsteinn frá Hamri
   •  Hjaltadalur - Matthías Jochumsson
   •  Hlíðabyggð - Matthías Jochumsson
   •  Hljóðabunga - Jón Helgason
   •  Hlöðufell - Jónas Hallgrímsson
   •  Hofsjökull - Jónas Hallgrímsson
   •  Hofsós - Hallgrímur Helgason
   •  Horn - Jakobína Sigurðardóttir
   •  Horn - Jón Helgason
   •  Hornbjarg - Jónas Hallgrímsson
   •  Hornbjarg - Þorsteinn Gíslason
   •  Hornbjarg - Theodóra Thoroddsen
   •  Hornstrandir - Theodóra Thoroddsen
   •  Hornstrandir - Eggert Ólafsson
   •  Hornstrandir - Jakobína Sigurðardóttir
   •  Hornstrandir - Hannes Pétursson
   •  Hornstrandir - Jónas Hallgrímsson
   •  Hólsfjöll - Matthías Johannessen
   •  Hólsfjöll - Bragi Ólafsson
   •  Hrafnagjá - Jónas Hallgrímsson
   •  Hrafnseyri - Hallgrímur Helgason
   •  Hraun í Öxnadal - Snorri Hjartarson
   •  Hraundrangar - Jónas Hallgrímsson
   •  Hreðavatn - Ólafur Jóhann Sigurðsson
   •  Hreiðarshóll - Jónas Hallgrímsson
   •  Húsafell - Grímur Thomsen
   •  Húsavík - Hulda
   •  Húseyjarkvísl - Berglind Gunnarsdóttir
   •  Hvalfjörður - Halldóra B. Björnsson
   •  Hvalfjörður - Þorsteinn Erlingsson
   •  Hvalfjörður - Anton Helgi Jónsson
   •  Hvalfjörður - Steingrímur Thorsteinsson
   •  Hvalsnes - Snorri Hjartarson
   •  Hvannadalshnjúkur - Birgir Svan Símonarson
   •  Hvítanes - Halldóra B. Björnsson
   •  Hvítá - Grímur Thomsen
   •  Hvítá - Sonja B. Jónsdóttir
   •  Hörgá - Hannes Pétursson
Dálkur: L Röð: 8
© Haukur Snorrason/photos.is 
Hallormsstaðaskógur

Bláfjólu má í birkiskógnum líta.
Blessað sé norðurhvelið sem mig ól!
Hallormur, má þá ei til einhvers nýta
þinn únga vin á nýum sparikjól,
alkominn heim um Atlantshafið hvíta,
og ákveðinn að lifa næstu jól,
floginn sem eingill austrá Fljótsdalshérað
er ángar ljúft við Fljótsins dreymnu ró
og aldrei hefur áður verið þérað:
– á yður prófar hann sína nýu skó.
Ó þvílíkt grín sem þessi panfíll er að
þeinkja og sýngja í yðar græna skóg.

Hann sem fór áður vegarvilt í borgum
og vínin drakk í margri ljótri kró,
hann sem var áður haldinn þýngstum sorgum,
– hugsaði bitrast er hann glaðast hló,
hann sem var áður afglapinn á torgum
er orðinn skáld í Hallormsstaðaskóg.

Ég unni forðum úngmey fyrir handan,
andlausri dúfu á bökkunum við Níl,
þaðan sem uppvex ljúfust fyrir landann
ein lítil sígaretta kend við Fíl.
Úr þessu lifi eg aðeins fyrir andann,
hinn eina sanna fljótsins krókódíl.

Héðan í frá er fortíð mín í ösku
og framtíð mín er norðurhvelsins ljóð.
Líkt og hjá pósti lokuð bréf í tösku
lít ég guðs forsjón – eða heljarslóð.
Bros mitt er ljúft sem brennivín á flösku.
Ég býð þér dús, mín elskulega þjóð.

Máríuklukkan grær á grænum völlum
guðhrædd og prúð sem feimið barn í saung ;
og hún er best af blómunum mínum öllum,
– það borðar hana dalakindin svaung.
Pósturinn gisti að Grímsstöðum á Fjöllum,
gaman er þar um sumarkvöldin laung.

Halldór Laxness

  prenta